Showing the single result

TYM T555 (IND) m/ámoksturstækjum Kynningarverð!

Vél sem hentar vel í ýmis verkefni svo sem garð og flatar slátt,  ámoksturstækjavinnu og minni skurðgröft. Þegar kemur að vinnu úti á flötinni er hér um fjölhæft hjálpartæki að ræða.

TYM T555 er vél sem sameinar kosti minni véla og dráttarvélar í einu verkfæri. Lipurð og áreiðanleiki ásamt miklum fjölbreytileika í notkun eru hennar aðal kostir.

     Vélin er knúin 51,5 hp Yanmar dísil mótor, er fjórhjóladrifin með HST-stiglausri skiptingu. Þrjú drif auðvelda aflflutning sem á þarf að halda við það hraðasvið sem unnið er á. Aksturshraði frá 0 og upp í 28,4 km/klst. Slétt gólf og vel fjaðrandi ökumannssæti ásamt góðu aðgengi að stjórnbúnaði gerir vélina lipra og þægilega í notkun. Hún hefur aflúrtak að aftan með val milli tveggja snúningshraða (540 og 1000 snú/mín) sem eykur fjölbreitileika á notkun til muna. Þrýtengibeisli að aftan með 1503 kg lyftigetu. Öryggisboga má fella niður til að hún taki minna pláss við geymslu.

Hún er með ásett TYM TX55 ámoksturstæki sem henta vel til jarðvegsflutnings og snjómoksturs ekki síður á  þrengri svæðum

Lyftihæð er 2770 mm og geta 1124 kg. 

Vélin kemur á iðnanaðarmunstur dekkjum, stærð framan 12-16,5 og aftan 17,5Lx24

Helsti val og aukabúnaður:
  • Backoe BY85 grafa sem kemur aftan á vélina og er hjálpleg þegar þarf að laga stíga eða grafa holu við trjá gróðursetningu ásamt öllu hinu sem svona græja nýtist við
  • Snjóplóg og tennur til vetranotkunnar
  • Dekk með traktorsmunstri eða grasmunstri er valmöguleiki
  • Framlyfta
Hér eru upplýsingar um vélina sem vert er að skoða  TYM T555