Lína fyrir Robolinho 2 x 150m

kr. 34.900 (kr. 28.145 án vsk)
  • 300m landamæravír (2 rúllur)
  • 270 grasnaglar
  • 20 geltengi og 2 jaðarvírklemmur fyrir hleðslustöðina (svæðistengi)

TYM T194 (TURF) m/sláttuborði og ámoksturstækjum Kynningarverð!

kr. 2.511.000 (kr. 2.025.000 án vsk)

Vél sem hentar vel í ýmis verkefni svo sem garðslátt, létta  ámoksturstækjavinnu og minni skurðgröft. Þegar kemur að vinnu úti á flötinni er hér um fjölhæft hjálpartæki að ræða og þarf að láta ýmindunaraflið fljóta til að koma auga á öll þau fjölbreyttu störf sem þessi þarfi þjónn getur leyst

TYM T194 er vél sem sameinar kosti slátturtraktors og dráttarvélar í einu verkfæri. Lipurð og áreiðanleiki ásamt miklum fjölbreytileika í notkun eru hennar aðal kostir.
  • Staðalbúnaður með þessari vél er miðjutengd sláttuvél með hliðarfrákasti sem tengja má safnkassa eða „mulsing“ hnífum sem mylja stráinn svo ekki þarf að raka eða hirða upp það sem slegið er. Einungis eru nokkur handtök við að fjarlægja slátturborðið undan vélinni og tekur innan við 5 mínútur, getur verið handhægt þegar um mokstursvinnu er að ræða og þar sem  slátturborðið getur verið fyrir.
Helsti val og aukabúnaður:
  • Ámoksturstæki eru nauðsynleg fyrir jarðvegsflutninga og lipur við hina ýmsu garðvinnu
  • Backoe lítil grafa sem kemur aftan á vélina og er hjálpleg þegar þarf að laga stíga eða grafa holu við trjá gróðursetningu ásamt öllu hinu sem svona græja nýtist við
  • Snjóplóg og tennur til vetranotkunnar
  • Dekk með grasmunstri, traktorsmunstri og iðnaðarmunstri er valmöguleiki
  • Framlyfta
Hér er bæklingur um vélina sem vert er að skoða TYM T194   Látið eftir ykkur að skoða myndbönd hér neðar á síðunni, þar er mikill fróðleikur