Vetrargeymsla Mammotion slátturóbotar
Til að róbotinn sé tilbúinn fyrir næsta sláttutímabil þarf að ganga rétt frá honum, hleðslustöðinni og RTK-stöðinni (2025 og eldra) fyrir veturinn.
Geymsla róbotans
- Gakktu úr skugga um að rafhlaðan sé að minnsta kosti 80% hlaðin og keyrðu róbotinn af hleðslustöðinni.
- Slökktu á róbotanum.
- Þrífðu róbotinn, þar á meðal yfirbyggingu, hjól, undirvagn og myndavélabúnað, með rökum klút eða mjúkum bursta. Ef þörf krefur má þvo róbotinn. Ekki snúa honum á hvolf til að þvo undirvagninn með vatni.
- Láttu róbotinn þorna. Ekki snúa honum á hvolf á meðan hann þornar.
- Berðu tæringarvarnarefni á hleðslusnerturnar. Ekki bera efnið á aðra hluta róbotans.
- Ráðlagður geymsluhiti: −10°C til 40°C.
- MIKILVÆGT: Þegar útihiti fer niður fyrir −10°C verður að færa róbotinn inn til geymslu.
Geymsla hleðslustöðvar
- Taktu hleðslustöðina úr sambandi við rafmagn.
- Fjarlægðu festipinnana.
- Þrífðu hleðslustöðina vandlega með bursta og klút.
- Taktu hleðslustöðina og aflgjafann inn til geymslu.
- MIKILVÆGT: Þegar útihiti fer niður fyrir −20°C verður að geyma hleðslustöðina innandyra þar sem hitastig helst yfir −20°C.
Fyrir næsta sláttutímabil: Settu hleðslustöðina aftur upp og uppfærðu staðsetningu hennar í Mammotion-appinu með aðgerðinni „Relocate the Charging Station“. Kortleggðu síðan akstursleiðina milli hleðslustöðvarinnar og sláttusvæðisins að nýju.
Geymsla RTK-stöðvar (2025 og eldra)
- Taktu RTK-stöðina úr sambandi.
- Vefðu snúrunni utan um stöðina og hertu hlífðarhettuna á tenginu.
- Settu plastpoka eða hlíf yfir RTK-stöðina.
Ef þessum skrefum er fylgt og RTK-stöðin er ekki færð þarf ekki að eyða kortinu eða kortleggja svæðið aftur fyrir næsta sláttutímabil.
RTK-stöð á vegg eða þaki:
- Taktu RTK-stöðina úr sambandi.
- Taktu stöðina af vegg- eða þakfestingunni.
- Fjarlægðu loftnetið.
- Þrífðu stöðina með klút.
- Geymdu stöðina innandyra þar sem hitastig helst yfir −20°C.
Fyrir næsta sláttutímabil: Settu RTK-stöðina aftur á nákvæmlega sama stað. Þá þarf ekki að eyða kortinu eða kortleggja svæðið aftur.
Hér finnur þú leiðbeiningar um vetrarviðhald fyrir LUBA, LUBA mini, YUKA og YUKA mini. Veldu þína gerð hér að neðan til að opna leiðbeiningamyndband:
LUBA og LUBA mini:
YUKA og YUKA mini:

Motocross og Endurohjól
Mótorhjól
Fjórhjól
Snjóblásarar
Utanborðsmótorar
Uppblásnir bátar
Vinnubílar
Rafstöðvar

Landbúnaður

XWOLF
AODES
ACCESS
Aukabúnaður fyrir fjórhjól

Rafhjól

Mammotion
Yarbo

Rösle
Rösle aukahlutir

Sláttutraktorar
Jarðvegstætari
Sláttuorf
Keðjusagir
Hekkklippur
Laufblásari
Energreen



Cleanfix
i-team
Weber


Vetrartæki
Snjóblásarar


TEXA
Aukahlutir í ökutæki

Húfur og derhúfur
