YAMAHA

NÝTT heimili YAMAHA á Íslandi

Aflvélar taka við Yamaha-umboðinu á Íslandi

Aflvélar hafa tekið við umboði Yamaha á Íslandi og munu bjóða upp á sölu, varahluti og þjónustu fyrir Yamaha hér á landi.

Yamaha er einn þekktasti framleiðandi heims á sínu sviði og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1955. Vörumerkið hefur í gegnum árin skapað sér sterkt orðspor fyrir gæði, endingu og áreiðanleika.

Með Yamaha bætist öflugt vörumerki við úrval Aflvéla og verður fjölbreytt úrval Yamaha-tækja í boði hjá okkur.

Aflvélar – nýtt heimili Yamaha á Íslandi.