Mammotion

LUBA mini 2 AWD 1500 (NÝTT)

Mammotion LUBA mini 2 AWD 1500 sameinar öfluga tækni, nákvæma leiðsögn og fjórhjóladrif í einstaklega öflugum slátturóbota sem ræður við allt að 1.500 m² garða. Hvort sem þú ert með brattar brekkur, þröng svæði eða flókna garðhönnun sér LUBA mini 2 AWD um sláttinn – án afmörkunarsnúru.

Nákvæm leiðsögn án afmörkunarvírs

LUBA mini 2 AWD notar 360° LiDAR ásamt tvöfaldri AI myndavél til að kortleggja garðinn með mikilli nákvæmni. Hann greinir umhverfið í rauntíma, forðast hindranir og vinnur jafnvel þar sem GPS-aðstæður eru erfiðar, t.d. undir trjám eða við húsveggi.

Fjórhjóladrif fyrir íslenskar aðstæður

Með AWD fjórhjóladrifi kemst LUBA mini 2 AWD upp allt að 80% halla (38,6°). Hann ræður því auðveldlega við brekkur, ójafnt undirlag og krefjandi garða þar sem hefðbundnir slátturóbótar eiga oft í erfiðleikum.

Nákvæmur kantsláttur

LUBA mini 2 AWD er búinn sérstökum kantsláttudiski sem slær mun nær brúnum, stígum og blómabeðum en hefðbundnir slátturóbotar. Það þýðir minni handsláttur og snyrtilegri garður.

Snjallari sláttur

LUBA mini 2 AWD býður upp á fjölda snjallra eiginleika:

  • Stjórnun allt að 20 sláttusvæða
  • Snjöll leiðarskipulagning fyrir skilvirkari slátt
  • DropMow – settu vélina einfaldlega niður á svæði og hún byrjar að slá án þess að vista nýtt kort
  • Hlutakortlagning – uppfærðu aðeins þann hluta garðsins sem hefur breyst
  • Skýjaafrit fyrir allt að 10 garðakort – fullkomið fyrir sumarhús eða fleiri fasteignir
  • Lawn Printing – sláðu falleg mynstur í grasflötina

Sjálfvirk forhitun rafhlöðu tryggir að vélin nái bestu afköstum jafnvel þegar kalt er í veðri. Rafhlaðan hitnar sjálfkrafa upp áður en sláttur hefst, sem eykur afköst og stuðlar að lengri endingu hennar.

Alltaf tengdur

Með ókeypis 4G einingu og 3 ára gagnapakka geturðu stjórnað slátturóbótinum hvar sem er í gegnum Mammotion appið. Einnig er stuðningur við Bluetooth og Wi-Fi.

Fyrir garða allt að 1.500 m²

LUBA mini 2 AWD 1500 slær allt að 500 m² á hverri hleðslu, hleðst á um 150 mínútum og heldur síðan áfram þar sem frá var horfið þar til verkinu er lokið.