Hafa samband
Farangurskassi aftan 90L XWolf 700
kr. 84.900 (kr. 68.468 án vsk)
TYM T255 (AG) m/ámoksturstækjum Kynningarverð!
kr. 2.951.200 (kr. 2.380.000 án vsk)
TYM T255 (IND) m/ ámoksturstækjum Kynningarverð!
kr. 3.013.200 (kr. 2.430.000 án vsk)
Í pöntun
Senda fyrirspurn
Svipaðar vörur
TYM T255 (IND) Kynningarverð!
kr. 2.405.600 (kr. 1.940.000 án vsk)
Vél sem hentar vel í ýmis verkefni svo sem garð og flatar slátt, létta ámoksturstækjavinnu og minni skurðgröft. Þegar kemur að vinnu úti á flötinni er hér um fjölhæft hjálpartæki að ræða og þarf að láta ýmindunaraflið fljóta til að koma auga á öll þau fjölbreyttu störf sem þessi þarfi þjónn getur leyst
TYM T255 er vél sem sameinar kosti slátturtraktors og dráttarvélar í einu verkfæri. Lipurð og áreiðanleiki ásamt miklum fjölbreytileika í notkun eru hennar aðal kostir.
Vélin er knúin 25,3 hp Yanmar dísil mótor, er fjórhjóladrifin með HST-stiglausri skiptingu. Tvö drif auðvelda aflflutning sem á þarf að halda við það hraðasvið sem unnið er á. Aksturshraði frá 0 og upp í 16,9 km/klst. Slétt gólf og vel fjaðrandi ökumannssæti ásamt góðu aðgengi að stjórnbúnaði gerir vélina lipra og þægilega í notkun. Hún hefur aflúrtak bæði undir miðri vél (2000 snú/mín) og að aftan (540 snú/mín) sem eykur fjölbreitileika á notkun til muna. Þrýtengibeisli að aftan með 551 kg lyftigetu. Öryggisboga má fella niður til að hún taki minna pláss við geymslu.
Vélin kemur á iðnaðardekkjum framan 16x7.50-8 og aftan 24x12.00-12
Helsti val og aukabúnaður:
- Miðjutengd sláttuvél með hliðarfrákasti sem tengja má safnkassa eða „mulsing“ hnífum sem mylja stráinn svo ekki þarf að raka eða hirða upp það sem slegið er
- Ámoksturstæki eru nauðsynleg fyrir jarðvegsflutninga og lipur við hina ýmsu garðvinnu
- Backoe lítil grafa sem kemur aftan á vélina og er hjálpleg þegar þarf að laga stíga eða grafa holu við trjá gróðursetningu ásamt öllu hinu sem svona græja nýtist við
- Snjóplóg og tennur til vetranotkunnar
- Dekk með traktorsmunstri eða iðnaðarmunstri er valmöguleiki
- Framlyfta