Pronar T185 krókheysisvagn

Pronar T185 er lipur og í þægilegri stærð (12 tonna burður)  til notkunnar fyrir bæjarfélög, verktaka sem og bændur. 

Hann ræður vel við allar gerðir gáma og palla sem eru í hvað mestri notkun við meðhöndlun á daglegum tilfærslum efnis, söfnun á rusli og garðaúrgangi, þ.e.s öllu þessu sem daglegt líf kallar til. 

Pronar krókheysis-vagnarnir eru sterkir og vel byggðir enda hefur Pronar fengið fjölda verðlauna fyrir vörur sínar.

Vagnin er með dekkstærð 500/50-17 í upphaflegri útfærslu en val er um fleiri stærðir að ósk neitanda. Tandem fjöðrun með vökvalás til aukins stöðuleika við hleðslu og vökvabremsur 300×15. Dráttarbeisli með stillanlegri hæð og 50 mm auga. Umskiptanlegt ef kúla hentar betur.   12 V LED ljósabúnaður með breiddarljósum. Plast aurhlífar yfir hjólum. Vagnin þarf 3 vökvaúttök frá dráttarvél fyrir fjöðrunarlás, sturtun og stjórnun á krókarmi.

Vagnarnir eru oftast til á lager ásamt tilheyrandi skúffum.

Hægt er að fá ýmsan aukabúnað til viðbótar, s.s. stærri dekk, varadekk, aðra stærð á dráttarkrók,vökvastýrðan fót, losftbremsur, eigið vökvakerfi með dælu og olíutank knúið af drifskafti, vökvastýrðum lásum á gáma  o.fl.

Heimasíða Pronar

Handbók

Vörunúmer 381000185

Vöruflokkur: Tög: , ,
Nánari lýsing

Nánari lýsing

Tæknilegar upplýsingar:

T185
Heildarþyngd (kg) 15.000
Hleðsluþyngd (kg) 12.130
Tómaþyngd (kg) 2.870
Breidd án gáms 2360
Lengd án gáms (mm) 5.940
Mesta lengd með gám (mm) 6.415/6782
Stærð gáma (mm) lengd: 4100 – 5050

Mesta breidd: 2550

Mesta hæð: 2000

Öxlar 2 (Tandem)
Hjólabil (mm) 1830
Dekkjastærð 500/50-17
Ökuhraði (km) 40
Athugasemdir

Athugasemdir

Framleiðandi

Pronar

Senda fyrirspurn

Senda fyrirspurn