Nánari lýsing
UPPLÝSINGAR
Rauður langtíma frostlögur er gerður úr monoethylene glycoli, (MEG) með sterkri tæringarvörn. Sérstaklega gerður til að vernda léttari málma eins og t.d. ál. Helmingsblöndun við vatn gefur bestu frost og tæringarvörnina allt að -38°C. Til að tryggja virkni tæringarvarnar efna þá skal aldrei blanda frostlöginn þynnri en 1 hluta af frostlegi og 2 hlutum af vatni.
EIGINLEIKAR
- Gæðastaðlar: ASTM D3306, D2570, VW 774
- Mesta frostþol °C: -38
- Suðumark: 108-110
- Ph gildi: 7-10
- Eðlisþyngd við 20°C g/cm3: 1,08
- Litur: Ljósrauður