Showing the single result

Tokvam snjóblásari F130 Hydraulic

verð er með vsk
Er nettur blásari ætlaður á minni vélar, henntar vel fyrir gangstéttar og við þröngar aðstæður, sérstaklega þar sem þörf er á léttum tækjum með mikla afkastagetu, kastlengd allt að 25 m. Tengist aftan á vél og bakkað eða kemur framan á vél á þrítengibeisli. Val um aflfluttning með drifskafti eða vökvarótor gefur kost á notkun við mikla breidd véla, frá smærri dráttarvélum, liðléttingum, skotbómulifturum til lítilla hjólaskófla. Snjóblásarin er búin oppnum tvöföldum innmötunarsnigli sem ræður vel við blautan sem harðan snjó og matar inn að öflugu kasthjóli sem skilar snjónum allt að 25 m frá honum í gegn um oppna og víða túðu, en henni má stjórna með vökvatjökkum, bæði snúningi og dreifispjaldi. Oppnar hliðar blásarans draga úr líkum á yfirhleðslu. Vinnslubreidd er 1,3 m. Val um aflúttakssnúning 540, 1000, 2000 eða 2500 snú/mín og vökvadrif þarf að tilgreina við pöntun.