Hafið samband við sölumenn hvað varðar verð og nánari upplýsingar
Pronar ZKP800 miðju rakstrarvélin er tveggja stjörnu rakstrarvél hönnuð til að raka saman slegið gras á ýmsum þurrk stigum og hentar vel á misjöfnum túnum sem og sléttum ökrum. Hún er sterkbyggð og afkastamikil og afar þægileg í notkun. Vélin sem er drifin af drifskafti tengdu frá aflúttaki dráttarvélar rakar með tveim stjörnum sem snúast á móti hvor annarri og mynda múga fyrir miðju hennar, stillanleg breidd múgans með vökvatjökkum 0,9 til 1,9 m. Heildar vinnslubreidd er jafnframt breytanleg frá 7 til 8 m eftir stillingu. Hún er tengd við þrítengibeisli dráttarvélarinnar og hafa burðarhjól hennar beygju sem tryggir að hún fylgir sporaslóð.
Hvor stjarna er útbúin 11 örmum með 4 tindum á hvern arm, auðvelt er að taka arma af t.d. til lækkunar vélarinnar í flutningsstöðu. Tandem hjólabúnaður ásamt nefhjólum, samtals 6 hjól með sjálfstæðri beygju á hverju hjóli undir hvorri stjörnu tryggja góða fylgni við túnið. Raksturshæð stjarnanna er handstillt.
Pronar ZKP800 er áreiðanleg vél sem hentar öllum bændum
Heimasíða Pronar ZKP800
Vörunúmer 515107008000307