Hraðahindrun (mjúk)
Þessi hraðahindrun er gerð úr sérstakri gúmmíblöndu sem gerir aksturinn yfir hindrunina mýkri, án þess þó að hægt sé að keyra hraðar yfir. Hraðahindrunin kemur í gulu og svörtu. Akstursvegalengdin yfir hraðahindrunina er 43cm.
Mál:
Miðja: 50x43x5cm
Endi: 22x43x5cm
Senda fyrirspurn
Svipaðar vörur
Umferðarkeila 75cm
Þessi keila er uppdraganleg og gerð úr vatnsheldu nælonefni, en fóturinn er úr þyngra efni til að hún standist vinda. Eftir notkun er hægt að pakka keilunni saman niður í 3cm þykkt og því fer nánast ekkert fyrir henni í bílnum.
Inni í keilunni er ljós sem hægt er að láta blikka eða vera stöðugt.
Stærð: 75cm
Koddar (miðja)
Þessir koddar henta vel þar sem hægja þarf á smábílaumferð án þess að valda stærri bílum, s.s. rútum og vörubílum óþægindum. Einnig er hægt að setja saman heila hraðahindrun með því að raða saman fleiri miðjum.
Einn koddi samanstendur af einni miðju og tveimur endum, en hægt er að kaupa efnið í lausu. Akstursvegalengdin yfir hindrunina er 90cm.
Mál:
Miðja: 50x90x5cm
Endi: 27x90x5cm