
















BigAb 7-10 Krókheysisvagn
Einn af mest seldu BIGAB’s krókheysum er 7-10, henntar afar vel fyrir þá sem þurfa litla vagna í minni verk og þröngar aðstæður.
Sterkur, áreiðanlegur en léttur og auðveldur í meðhöndlun er það sem BIGAB ætlast til af 7-10.
Fjölhæfni hans og styrkur gerir hann að góðum kosti fyrir notendur sem vinna í íbúðarhverfum, almenningsgörðum, kirkjugörðum o.s.frv.
Mikið úrval aukabúnaðar í boði.
Heimasíða BigAb 7-10
Myndband Big Ab 7-10 krókheysi
Vörunúmer 541700200-N0100010
Nánari lýsing
Tæknilegar upplýsingar:
Athugasemdir
Athugasemdir
Framleiðandi |
FORS / Bigab |
---|
Senda fyrirspurn
Senda fyrirspurn
Svipaðar vörur
ERT rúlluvagn 8,5m
16 tonna rúlluvagn með 8,5 m löngum palli
Fjaðrandi beisli á gúmmípúðum
Ljósabúnaður fyrir skráningarmöguleika
Stillanlegir stuðningsrammar á endum
Fastur fótur
Vökvabremsur á fremri öxli
Verkfærakassi úr plasti
Heimasíða ERT ERT rúlluvagn 16 tonn
Fáanlegur aukabúnaður:
Vökvafjöðrun á beisli
Bretti yfir dekk pr öxul
Vökvalyftur fótur
Vökva og loftbremsur í stað vökva
Vörunúmer 543PP16-160033
ERT 20 tonna malarvagn
ERT malarvagn sem hentar í fjölhæfa vinnu við ýmsar erfiðar aðstæður.
Vagninn er á breiðum og flotmiklum dekkjum á tandem hásingum sem hjálpar til í deigu landi, gerir hann einkar stöðugan og þægilegan. Fjöðrun er á dráttarbeisli. Hann kemur með ljósabúnaði að aftan ásamt hliðar/breiddar ljósum. Handbremsu og vökvabremsu á fremri hásingu. Bretti yfir öll hjól. Búnaður sem er innifalinn í verði ERT E 20 sturtuvagna með 20 tonna burðargetu:- Gúmmípúðafjöðrun á dráttarbeisli
- Eigin þyngd 4,700 kg
- Ljósabúnaður.
- Hardox 450 stál í botni og hliðum.
- Dekk 710/45R-22,5 10 Ply
- Upphækkun fyrir korn 70 cm
- Upphækkun fyrir korn 85 cm
- Upphækkun fyrir gras 185 cm
- Yfirbreiðsla sem rúllast til hliðar
- Loftbremsur 2 öxlar
- Vökva og loftbremsur 2 öxlar
- Vinnuljós aftan
- Vökvafjöðrun á beisli
- Vökvastýrður fótur á beisli
- Dekk 600/50-22,5
- Rauður pallur og svört grind
Skúffa KO01 á T185
Gámur til fjölbreytilegrar notkunar. Hentar vel í landbúnaði sem og fyrir bæjarfélög og verktaka. Gámurinn er með tveim dyrum að aftan sem opnast til sinn hvorrar hliðar og er með miðjulæsingu. Hliðar með C-prófíl.
Heimasíða Pronar
Vörunúmer 381000003
Skúffa KO04 á T285
Gámur KO04 býður upp á 26m3 hleðslumagn og er hann stærsti gámurinn hjá Pronar. Vegna styrkinga með C-prófíl á hliðum er hann öflugur og rúmmál hans gerir að hann er tilvalin til að flytja korn, laufblöð, trjákurl og ýmsan rúmfrekan efnivið. Gámurinn hefur tvær dyr að aftan sem opnast til sinn hvorrar hliðar. Miðjulæsing. Ásamt krókheysisvagni er þessi gámur frábært tæki til að vinna í landbúnaði, byggingariðnaði, flutningum og þjónustu sveitarfélaga.
Heimasíða Pronar
Vörunúmer 381000004
Krókheysivagn Pronar T-285
Pronar – T285 krókheysi
Pronar heisi-vagnana er hægt að fá bæði með palli/gám eða án. Vagnarnir eru sterkir og vel byggðir enda hefur Pronar fengið fjölda verðlauna fyrir vörur sínar. Vagnarnir eru á tveimur tendem-öxlum að aftan, vökvastýrðum stoðfæti að framan, vökvabremsum eða loftbremsuml, handbremsu, ljós. Hægt er að fá ýmsan aukabúnað til viðbótar, s.s. stærri dekk, varadekk, aðra stærð á dráttarkrók o.fl.
Vagnarnir eru oftast til á lager
Heimasíða Pronar Vörunúmer: 381000260
Heimasíða Pronar Vörunúmer: 381000260
Pronar T185 krókheysisvagn
Pronar T185 er lipur og í þægilegri stærð (12 tonna burður) til notkunnar fyrir bæjarfélög, verktaka sem og bændur.
Hann ræður vel við allar gerðir gáma og palla sem eru í hvað mestri notkun við meðhöndlun á daglegum tilfærslum efnis, söfnun á rusli og garðaúrgangi, þ.e.s öllu þessu sem daglegt líf kallar til.
Pronar krókheysis-vagnarnir eru sterkir og vel byggðir enda hefur Pronar fengið fjölda verðlauna fyrir vörur sínar.
Vagnin er með dekkstærð 500/50-17 í upphaflegri útfærslu en val er um fleiri stærðir að ósk neitanda. Tandem fjöðrun með vökvalás til aukins stöðuleika við hleðslu og vökvabremsur 300x15. Dráttarbeisli með stillanlegri hæð og 50 mm auga. Umskiptanlegt ef kúla hentar betur. Vökvastýrður fótur. 12 V LED ljósabúnaður með breiddarljósum. Stál aurhlífar yfir hjólum. Vagnin þarf 3 vökvaúttök frá dráttarvél fyrir fjöðrunarlás, sturtun og stjórnun á krókarmi.
Vagnarnir eru oftast til á lager ásamt tilheyrandi skúffum.
Hægt er að fá ýmsan aukabúnað til viðbótar, s.s. stærri dekk, varadekk, aðra stærð á dráttarkrók, losftbremsur, eigið vökvakerfi með dælu og olíutank knúið af drifskafti, vökvastýrðum lásum á gáma o.fl.
Heimasíða Pronar
Handbók
Vörunúmer 381000185
BigAb Gámur 4500X2450X460
Gámur með oppnanlegum hliðum og gafl sem gerir hann að fleti og því auðvelt að lesta brettavöru með lyftaragöfflum og aðra vöru þar sem fleti hentar. Einnig hentugur i alla efnisflutninga.
Hægt að fá upphækkun á hliðar og gafl sem nemur 460 mm
heildar lengd 4500 mm
heildar breidd 2450 mm
hæð hliða 460 mm
efnisþykkt botn 6-8 mm og hliðar 4-6 mm (Val um stál 35 eða Hardox stál)
heildar þyngd 1640-1790 kg
Heimasíða BigAb
Vörunúmer 541700235/A3462
Pronar T701 HP malarvagn
Malarvagnarnir frá Pronar eru með þeim vandaðri sem eru framleiddir í dag. Vagnarnir eru sterkir og endingargóðir
Pronar T701 HP, hálfpípu vagninn var hannaður sérstaklega með kröfur notenda í byggingar - og verktaka iðnaði, í huga. Vagninn er einstaklega stöðugur og með þéttum vökvaopnanlegum afturhlera sem getur einnig verið í "swingin" stöðu og stutt þá við efnið þegar sturtað er til að fá jafnt yfirborð þegar sturtað er á ferð. Vagninn er búinn “bogie” fjöðrun á fleygfjöðrum með 1600 mm hjólhafi og miklu hallahorni, sem virkar vel við erfiðar aðstæður. Beislið er á gormafjöðrun. Hleðslurýmið er úr Hardox 450, 6mm þykku stáli.
Dekkin eru Alliance 882, stærð 600/55R26,5
