Fréttir Aflvélar

Nýr fjölplógur frá Pronar

Pronar er metnaðarfullt fyrirtæki sem hefur það að stefnu sinni að koma á hverju ári með betri vöru eða eitthvað nýtt inn í vöruflóru sína. Að þessu sinni hafa þeir kynnt til sögunnar nýjan endurbættan fjölplóg með nýju útliti og nýjum Pronarnotkunarmöguleikum. Þessi plógur hefur meiri halla á skerablöðum og rífur þannig betur upp harðan eða frosin snjó og klaka. Vængirnir eru hannaðir þannig að þeir eru með jafnri sveigju eins og kastplógur og hærri til endanna þannig að plógurinn þeytir vel frá sér snjónum. 

 

Fyrirhugað er að fyrstu plógarnir af þessari gerð komi í hús hjá okkur í nóvember. Einungis verður um eitt til tvö eintök að ræða í fyrstu og mælum við því með að menn hafi samband og eigni sér eintak áður en það er of seint.


Þessi plógur verður til í stærðinni: 2,6 – 2,8 – 3,0 – 3,3m

Einnig er hægt að velja um festingar fyrir CASE, JCB, CAT o.fl tegundir tækja.