Hafa samband
BigAb 7-10 Krókheysisvagn
Einn af mest seldu BIGAB’s krókheysum er 7-10, henntar afar vel fyrir þá sem þurfa litla vagna í minni verk og þröngar aðstæður.
Sterkur, áreiðanlegur en léttur og auðveldur í meðhöndlun er það sem BIGAB ætlast til af 7-10.
Fjölhæfni hans og styrkur gerir hann að góðum kosti fyrir notendur sem vinna í íbúðarhverfum, almenningsgörðum, kirkjugörðum o.s.frv.
Mikið úrval aukabúnaðar í boði.
Heimasíða BigAb 7-10
Myndband Big Ab 7-10 krókheysi
Vörunúmer 541700200-N0100010
Nánari lýsing
Tæknilegar upplýsingar:
Athugasemdir
Athugasemdir
Framleiðandi |
FORS / Bigab |
---|
Senda fyrirspurn
Senda fyrirspurn
Svipaðar vörur
NC 600 seríu malarvagn
þessi lína í malarvögnum hentar vel sem fjölnota tæki í efnisfluttninga sem og vélafluttninga
Pallurinn er sléttur út að skjólborðum og hleri/vör fellur niður með vökvastýringu sem gerir aðgengi með að setja vinnuvél inn á hann afar þægilega. Hægt er að fá álsliskjur sem bera 9,5 tonn sem aukabúnað og er gert ráð fyrir geymsluplássi fyrir þær undir pallinum. 4 krókar feldir í gólf pallsins til að binda vinnuvél fasta.
Vagnin er með 6mm Hardox í botni, á 385/65 - 22,5 hjólbörðum á tandem hásingu en algengt er að taka hann á 560/45-22,5 hjólbörðum
4 stærðir eru í boði
Ýmis aukabúnaður er í boði en þetta er það helsta:
- Dekk 560/45-22,5 í stað 385/65-22,5
- Álsliskjur 4m með 9,5 tonna burðargetu
- Hæðarstillanlegur dráttarkrókur
- Hardox stál 8 mm í stað 6mm í botni
- Hardox stál 5mm í hliðum í stað standard
- Háhraðaöxull með fjöðrun (29)Tandem 60 km
- Loft og vökvavagnbremsur
- Undirakstursvörn
- Heimasíða NC
- Bæklingur
- Handbók
Pronar PT510 fjölnota vagn
fjölhæfur vagn til ýmissa fluttninga.
10 tonna hlassþyngd
Hentar vel þar sem fjölbreytni í notkun ræður för, sem flatvagn, malarvagn með einu setti af skjólborðum og kornvagn með tveim settum af skjólborðum. Tandem með blaðfjöðrum gera hann mjúkan í drætti hvort sem um tóman eða hlaðin vagn er að ræða. Sturtun er á þrjá vegu, aftur úr og til sinn hvorrar hliðar. Skjólborð eru 60 cm breið, gerð úr rifluðu stáli og auðveld í umgengni hvort sem um er að ræða að opna eða hreinlega taka þau af. Upphækkun um 60 cm breið skjólborð sem er smellt á er valbúnaður. Kornlúga á afturhlera er staðalbúnaður. Stigi með góðum þrepum er framan á vagninum til að auðvelda inngöngu á pallinn. Hæðarstillanlegt dráttarbeisli með 50 mm snúningsauga. Vökvastýrður fótur á dráttarbeisli. Val um loft eða vökvabremsur en í þessu tilfelli er um vökvabremsur að ræða. Hann er með handbremsu sem er trekkt. Ljósabúnaður að aftan. Dekk stærð 500/45-22,5 Litur er rauður ral 3000 á grind og grænn ral 6010 á skjólborðum. Heimasíða PronarERT 20 tonna malarvagn
ERT malarvagn sem hentar í fjölhæfa vinnu við ýmsar erfiðar aðstæður.
Vagninn er á breiðum og flotmiklum dekkjum á tandem hásingum sem hjálpar til í deigu landi, gerir hann einkar stöðugan og þægilegan. Fjöðrun er á dráttarbeisli. Hann kemur með ljósabúnaði að aftan ásamt hliðar/breiddar ljósum. Handbremsu og vökvabremsu á fremri hásingu. Bretti yfir öll hjól. Búnaður sem er innifalinn í verði ERT E 20 sturtuvagna með 20 tonna burðargetu:- Gúmmípúðafjöðrun á dráttarbeisli
- Eigin þyngd 4,700 kg
- Ljósabúnaður.
- Hardox 450 stál í botni og hliðum.
- Dekk 710/45R-22,5 10 Ply
- Upphækkun fyrir korn 70 cm
- Upphækkun fyrir korn 85 cm
- Upphækkun fyrir gras 185 cm
- Yfirbreiðsla sem rúllast til hliðar
- Loftbremsur 2 öxlar
- Vökva og loftbremsur 2 öxlar
- Vinnuljós aftan
- Vökvafjöðrun á beisli
- Vökvastýrður fótur á beisli
- Dekk 600/50-22,5
- Rauður pallur og svört grind
Pronar T185 krókheysisvagn
Pronar T185 er lipur og í þægilegri stærð (12 tonna burður) til notkunnar fyrir bæjarfélög, verktaka sem og bændur.
Hann ræður vel við allar gerðir gáma og palla sem eru í hvað mestri notkun við meðhöndlun á daglegum tilfærslum efnis, söfnun á rusli og garðaúrgangi, þ.e.s öllu þessu sem daglegt líf kallar til.
Pronar krókheysis-vagnarnir eru sterkir og vel byggðir enda hefur Pronar fengið fjölda verðlauna fyrir vörur sínar.
Vagnin er með dekkstærð 500/50-17 í upphaflegri útfærslu en val er um fleiri stærðir að ósk neitanda. Tandem fjöðrun með vökvalás til aukins stöðuleika við hleðslu og vökvabremsur 300x15. Dráttarbeisli með stillanlegri hæð og 50 mm auga. Umskiptanlegt ef kúla hentar betur. 12 V LED ljósabúnaður með breiddarljósum. Plast aurhlífar yfir hjólum. Vagnin þarf 3 vökvaúttök frá dráttarvél fyrir fjöðrunarlás, sturtun og stjórnun á krókarmi.
Vagnarnir eru oftast til á lager ásamt tilheyrandi skúffum.
Hægt er að fá ýmsan aukabúnað til viðbótar, s.s. stærri dekk, varadekk, aðra stærð á dráttarkrók,vökvastýrðan fót, losftbremsur, eigið vökvakerfi með dælu og olíutank knúið af drifskafti, vökvastýrðum lásum á gáma o.fl.
Heimasíða Pronar
Handbók
Vörunúmer 381000185
ERT ML20 BIO lokaður gámur
Lokaðir gámar eru í boði frá ERT í ýmsum litum
stærð: lengd 6000 mm breidd 2450 mm hæð 1600 mm rúmtak 21 m3 Heimasíða ERT Vörunúmer 543ML20BIOBigAb vélafleti
með viðargólfi á þeim hluta sem vélar hvíla á til að minnka hættu á hálku og að vélar renni til.
stærð fletis er 4,6 x 2,55 m og veggþykkt á botni 6mm
Heimasíða BigAb
Bæklingur BigAb
Pronar – PB3100 vélavagn
PB3100 vagninn er alvöru vagn til tækjaflutninga. Vagninn er þriggja öxla, tekur 24 tonn og er ætlaður aftan í vörubíla. Hægt er að fá ýmsan aukabúnað á vagninn, s.s. vökvastýringu í rampa að aftan, vökvaspil, varadekk, verkfæraskáp, útvíkkun á palli o.fl. Einnig er hægt að velja um viðartegund á dekkinu, þ.e. eik eða fura.
Tækjavagnarnir eru sérpantaðir eftir þörfum og óskum kaupanda.
Heimasíða Pronar
Pronar – T655 sturtuvagn
Þessi vagn hentar vel fyrir litla traktora í innanbæjarsnatti, t.d. hjá bæjarfélögum eða fyrir einstaklinga. Beislið er með 50mm auga fyrir krók, loftbremsum, handbremsu (barki), ljósum og 3ja-þrepa sturtutjakk.
Heimasíða Pronar