Nánari lýsing
UPPLÝSINGAR
Blár frostlögur er gerður úr monoethylene glycoli,( MEG ) hann verndar gegn tæringu og ryði, kemur í veg fyrir froðumyndun og viðheldur hreinleika í kerfinu. Frostlögurinn uppfyllir kröfur PN-C-40007 staðlinum. Ráðlagt blöndunarhlutfall við vatn er 1:1. Helmingsblöndun við vatn gefur bestu frost og tæringarvörnina allt að -38°C. Til að tryggja virkni tæringarvarnar efna þá skal aldrei blanda frostlöginn þynnri en 1 hluta af frostlegi og 2 hlutum af vatni.
EIGINLEIKAR
- Gæðastaðlar: BS6580:1992; ASTM D3306; ASTM D 4985 SAE J 1034
- Mesta frostþol °C: -36
- Suðumark: 107-110
- Ph gildi: 7-10
- Eðlisþyngd við 20°C g/cm3: 1,12
- Litur: Græn-blár